Fimmtudagskvöldið 7. nóvember fáum við góða heimsókn frá Icewear! Kynntar verða uppskriftir að prjónuðum fylgihlutum sem eru tilvaldir í jólapakkana, svo sem vettlinga, húfur, sokkar og sjöl. Einnig verða barnapeysur, ungbarnateppi og peysur á fullorðna til sýnis.
Húsið opnar klukkan 19:00 og kynningin hefst klukkan 20:00. Prjónakaffinefndin verður á sínum stað með kaffi og kruðerí á vægu verði.
Verið öll hjartanlega velkomin!