1. des á Árbæjarsafni

Í tilefni fullveldisdagsins þann 1. desember efna Árbæjarsafn, Félag harmonikuunnenda í Reykjavík, Gímusamband Íslands, Heimilisiðnaðarfélag Íslands, Kvæðamannafélagið Iðunn og Þjóðdansafélag Reykjavíkur til fögnuðar á Árbæjarsafni. Frítt inn og öll velkomin!
Gestum gefst færi á að kynnast gömlu dönsunum, handverki, harmonikum, kveðskap, íslenskri glímu, þjóðbúningum, þjóðdönsum, þjóðlögum og þeim menningararfi sem iðkaður er af félögunum sem að viðburðinum koma auk þess að kynnast starfi félaganna. Á viðburðinum verða skemmtileg örnámskeið og kynningar þar sem hægt verður að prófa íslensku glímu, læra grunnsporin í þjóðdönsum og kynnast kvæðalögum.
Í tilefni dagsins hvetjum við gesti til að mæta á þjóðbúning, en hægt verður að fá ráðgjöf varðandi búninganotkun og hvernig koma megi eldri búningum í notkun.
Dagskrá:
Lækjargata 4 / Neyzlan – Heimilisiðnaðarfélag Íslands
Kornhúsið – Félag harmonikuunnenda í Reykjavík
Árbær og kirkjan – Kvæðamannafélagið Iðunn
Landakot / ÍR húsið
13:00 – Þjóðdansafélag Reykjavíkur – Þjóðdansanámskeið
14:00 – Kvæðamannafélagið Iðunn – Kynning á kveðskap
15:00 – Glímufélag Íslands – Glímunámskeið
16:00 Félag harmonikuunnenda í Reykjavík – Dansleikur
Líkn – Myndabás
Gagnlegar upplýsingar:
Aðgengi: Gangstígar á safnsvæðinu eru flestir malarstígar. Inn í flest húsin er gengið upp eitt þrep eða yfir þröskuld. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið.
Strætisvagnar: Næsta stoppistöð heitir Árbæjarsafn (1 mín. gangur). Aðrar nálægar stoppistöðvar heita Laxakvísl og Fagribær (5-6 mín. gangur).
Bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru við inngang safnsins. Öll bílastæði eru ókeypis.