Vínviðarkarfa / Brauðkarfa
Kennari: Margrét Guðnadóttir.
Lengd námskeiðs: 2 skipti = 6 klst.
Tími: 8. og 15. febrúar - mánudagskvöld kl. 18 - 21.
Námskeiðsgjald: 21.880 kr. (19.692 kr. fyrir félagsmenn) – efni er innifalið.
Unnin er karfa þar sem vínviður er uppistaðan / kanturinn. Karfan er falleg á borði fyrir brauð eða ávexti. Þessi aðferð gefur möguleika á að nota ýmsan efnivið úr náttúrunni, liti og annað efni. Skemmtileg karfa sem hentar bæði byrjendum og lengra komnum. Kennt verður að lita körfuna í lok námskeiðs.