Tvíbandavettlingar / fingravettlingar
Kennari: Guðný Ingibjörg Einarsdóttir.
Lengd námskeiðs: 2 skipti = 6 klst.
Tími: 7. og 14. mars- mánudagar kl. 18 – 21.
Námskeiðsgjald: 17.900 kr. (15.120 kr. fyrir félagsmenn) - efni er ekki innifalið.
Skemmtilegt og krefjandi námskeið í tvíbandaprjóni. Kjörið fyrir þá sem kunna að prjóna en vilja ná góðum tökum á þessari aðferð. Prjónaðir eru hefðbundnir tvíbandavettlingar eða hanskar á prjóna nr. 2 og nr. 2,5 eftir uppskrift frá kennara. Nemendur koma með garn, sokkaprjóna og nál.
Nemendur eru beðnir um að prjóna stroff á einn vettling áður en námskeiðið hefst þannig að tíminn nýtist sem best.
Hámarksfjöldi nemenda er átta.