ÞJÓÐBÚNINGUR KVENNA KVÖLDNÁMSKEIÐ
Kennari:
Oddný Kristjánsdóttir.
Lengd námskeiðs:
11 skipti = 33 klst.
Máltaka:
19. ágúst – þriðjudagur – kl. 18-21
Saumatímar:
16. september-25. nóvember – Þriðjudagar – kl. 18-21
ATH: Enginn tími 18. nóvember
Námskeiðsgjald:
180.000 kr. (162.000 fyrir félagsmenn)
Efni er ekki innifalið.
Saumaður er upphlutur eða peysuföt 19. eða 20. aldar - sjá nánar á www.buningurinn.is. Búningurinn er klæðskerasniðinn og máltaka er í fyrsta tíma. Nemendur mæta með saumavél og áhöld og æskilegt er að þeir hafi grunnþekkingu í saumaskap. Mikill hluti vinnunnar er handsaumur og heimavinna er umtalsverð. Allt efni og tillegg er fáanlegt í verslun HFÍ, efni í 1 búning kostar á bilinu 120.000-180.000kr eftir búning og efnum.
Aths.: Ef fólk vill sjálft baldýra eða knipla á búninginn mælum við með að þau námskeið séu tekin á undan þessu. Námskeiðslýsingu þeirra má sjá undir Námskeið/Þjóðbúningar.
Hámarksfjöldi nemenda er sex.