ÞJÓÐBÚNINGUR KVENNA KVÖLDNÁMSKEIÐ
Kennari: Oddný Kristjánsdóttir.
Lengd námskeiðs: 11 skipti = 33 klst.
Tími: Máltaka 30. nóvember
Saumatímar: 27. janúar - 8. apríl - þriðjudaga kl. 18:00 - 21:00
Námskeiðsgjald: 159.000 kr. (143.100 kr. fyrir félagsmenn) - efni er ekki innifalið.
Saumaður er upphlutur eða peysuföt 19. eða 20. aldar - sjá nánar á www.buningurinn.is. Búningurinn er klæðskerasniðinn og máltaka er í fyrsta tíma. Nemendur mæta með saumavél og áhöld og æskilegt er að þeir hafi grunnþekkingu í saumaskap. Mikill hluti vinnunnar er handsaumur og heimavinna er umtalsverð. Allt efni og tillegg er fáanlegt í verslun HFÍ, efni í 1 búning kostar á bilinu 120.000-180.000kr eftir búning og efnum.
Aths.: Ef fólk vill sjálft baldýra eða knipla á búninginn mælum við með að þau námskeið séu tekin á undan þessu. Námskeiðslýsingu þeirra má sjá undir Námskeið/Þjóðbúningar.
Hámarksfjöldi nemenda er sex.