Hvítsaumur venesískur - námskeið

Hvítsaumur

Kennari: Ragnheiður Sjöfn Jóhannsdóttir

Lengd námskeiðs: 3 skipti = 9 klst.

Tími: 22. og 29. janúar og 5. febrúar kl 17.00-20.00

Námskeiðsgjald: 29.900kr (26,910kr. fyrir félagsmenn) - nál, efni og garn í prufu innifalið.

Hvitsaumur er regnhlífar heiti yfir ýmsar útsaumstegundir sem eiga það sameiginlegt að vera saumaðar í sama lit og efnið sem verið er að sauma í sem var hér áður fyrr yfirleitt hvítur hör. Á þessu námskeiði verður farið yfir grunnatriði hvítsaums og  nokkur af þeim sporum sem oft eru notuð s.s. leggsaum, fylltan leggsaum, herpisaum, göt og fleira. Venesískur útsaumur einkennist af götum og verður farið sérstaklega yfir hvernig má gera þau á þessu násmkeiði. 

Efni í prufu er innifalið í námskeiðinu en nemendur þurfa að hafa með sér skæri og við mælum með að þau sem eigi stækkunarlampa hafi þá með sér. myndir í lýsingu er ekki myndin af prufunni