Til baka
Baldýring - netnámskeið
Baldýring - netnámskeið

Baldýring - netnámskeið

Vörunr.
Verðmeð VSK
28.500 kr.
Uppselt

Lýsing

BALDÝRING - Netnámskeið 

Kennarar: Ólöf Engilberts 

Lengd námskeiðs: 3 skipti = 9 klst.

Tími: 20. og 27 nóvember og 4. desember kl 18:30-21:30 

Námskeiðsgjald: 28.900 kr. (26.010 kr. fyrir félagsmenn) - efni og garn í prufur er innifalið.

Námskeiðið er kennt á netinu í gegnum fjarfundarbúnað nemendur þurfa því tölvu með myndavél og hljóðnema til að taka þátt. Þetta er í fyrsta sinn sem Heimilisiðanarfélagið kennir netnásmkeið. 

Gullsaumur eða baldýring er gömul útsaumsaðferð sem þekkt er víða um heim. Hér á landi hefur aðferðin einna helst verið notuð á þjóðbúningum og í kirkjulegum útsaumi. Baldýring er þó ekki eingöngu til notkunar á þjóðbúningum og kirkjuklæðum en hún kemur stórkostlega út á til dæmis nælu eða veski.

Á þessu námskeiði verður byrjendum kennd grunn atriðin og réttu handtökin í baldýringu og nemendur byrja á að gera prufu.

Nemendur þurfa skæri, fingurbjörg og venjulegan svartan saumtvinna. Einnig er gott að nota stækkunargler með sér ef fólk á.

Efnispakkar í prufur verða sendar 13. nóvember en ef fólk vill sækja í nethylinn er hægt að gera það fram til 19. nóvember.