Miðvikudaginn 27. maí kl. 19.30
Fundurinn er haldinn í Kornhúsinu á Árbæjarsafni í Reykjavík og eru félagsmenn hvattir til að fjölmenna.
Á dagskrá hefðbundin aðalfundarstörf (sjá nánar í lögum félagsins hér).
Ársreikningar liggja frammi á skrifstofu, og eru aðgengilegir á heimasíðunni, 10 dögum fyrir aðalfund svo að félagsmenn geti kynnt sér þá. Ársreikninga HFÍ árið 2019 má nálagast hér.
Komið hafa fram tillögur að lagabreytingum. Tillögurnar er hægt að kynna sér á skrifstofu félagsins sem og á heimasíðu 10 dögum fyrir aðalfund. Tillögur til lagabreytingar má nálgast hér.
Á aðalfundi flytja stjórn og nefndir ársskýrslur sínar en þær gefa góða mynd af öflugu starfi félagsins. Fróðlegt og skemmtilegt er að heyra af þessu mikla starfi og hvetur stjórn félagsmenn til að mæta á fundinn til þess. Minnum jafnframt á að skýrslurnar eru birtar í aðalfundargerð á heimasíðu okkar eftir fundinn.