Umsjónartími í þjóðbúningasaum - apríl

Umsjónartímar í þjóðbúningasaumi

Kennarar: Oddný Kristjánsdóttir og Kristín Vala Breiðfjörð 

Vorönn 2024: 3. febrúar, 2. mars, 6. apríl, 4. maí og 1. júní (ef áhugi er fyrir hendi) - laugardaga kl. 10 - 13.

Námskeiðsgjald: 9.000 kr. skiptið (8.100 kr. fyrir félagsmenn).

Umsjónartímar eru ætlaðir þeim sem vinna að faldbúningi, skautbúningi eða kyrtli - sjá www.buningurinn.is. Í tímunum fá nemendur einstaklings­miðaða aðstoð við fjölbreytt verkefni. Hver tími er stakur og getur því hentað vel sem aukatími fyrir minni verkefni tengd þjóðbúningasaumi, til dæmis skyrtu- og svuntusaum eða lagfæringar á eldri búningum.

Skráning fer fram á [email protected]