Þjóðbúningasaumur á Laugalandi í Eyjafirði

Akureyri

Kennarar: Oddný Kristjánsdóttir og Kristín Vala Breiðfjörð.

Lengd námskeiðs: 2 skipti = 12 klst. Ath. hver helgi er stök.

Tími: 20.-21. janúar 

17.-18. febrúar 

16.-17. mars

20.-21. apríl 

25.-26. maí 

Námskeiðsgjald: Hver helgi 50.000kr (45.000kr fyrir félagsmenn)

 Skráning fer fram í gegnum netfangið [email protected]

Frá árinu 2014 hefur Heimilisiðnaðarfélag Íslands boðið upp á námskeið í þjóðbúningasaum í gamla kvennaskólanum að Laugalandi í Eyjafjarðarsveit. 

Á námskeið í þjóðbúningasaumi á Laugalandi í Eyjafirði sem haldið er í samstarfi við þjóðháttafélagið Handraðann vinna nemendur að ólíkum verkefnum, gerð faldbúninga, kyrtla, peysufata og upphluta, skyrtu- og svuntu­saumi, útsaumi eða baldýringu. Hver helgi er stök og er mögulegt að taka þátt hluta úr helgi og hafa þeir sem skrá sig heila helgi forgang. Verðið fyrir námskeiðshelgina er 50.000 krónur (45.000kr fyrir félagsmenn)

Kennt er frá kl 11-18 á laugardögum og 10-17 á sunnudögum (getur breyst eftir flug tímum), tekið er klukkutíma hádegishlé. Aðstöðugjald er 500kr á helgi og greiðist beint til Handraðans fyrir kaffi og klósettpappír. Stundum er boðið uppá að kaupa heitan mat og kostar hann í kringum 1000kr og er látið vita af honum á Facebook hópnum.

Hægt að skrá sig á saumahelgi með því að senda tölvupóst á [email protected]. Lokadagur fyrir skráningu verður fimmtudagurinn í vikunni fyrir kennslu helgi, þ.e.a.s. 8 dögum áður en kennsla hefst og við munum senda reikning um leið og skráning er gerð. Hafi lágmarksþátttaka ekki náðst á þessum degi mun kennslan falla niður í þeim mánuði.